
Rangárþing eystra
|
Sveitarfélagið Rangárþing eystra varð til þann 9. júní árið 2002. Þá sameinuðust sex hreppar í austanverðri Rangárvallarsýslu í eitt sveitarfélag; Hvolhreppur, Fljótshlíðarhreppur, Austur Landeyjahreppur, Vestur Landeyjahreppur, Austur Eyjafjallahreppur og Vestur Eyjafjallahreppur.
Rangárþing eystra nær frá Eystri-Rangá í vestri til Jökulsár á Sólheimasandi í austri. Sveitarfélagið er mikið landbúnaðarhérað en jafnframt er ferðaþjónusta vaxandi atvinnugrein og þar er að finna einstakar náttúruperlur og þekkta sögustaði. Ferðaþjónusta í Rangárþingi eystra er í miklum blóma og fyrir gesti svæðisins er margt að sjá og gera. Í sveitarfélaginu eru margar þekktari náttúruperlur eins og t.d. Þórsmörk, Tindfjöll, Eyjafjallajökull, Skógarfoss, Seljalandsfoss og Paradísarhellir en auk þess er að finna einstakar náttúru- og jarðfræðiminjar sem eru minna þekkt eins og Mögugilshelli sem talin er vera stærsti náttúrugerði móbergshellir í norður Evrópu og Drumbabót, þar sem finna má minjar um aldagamlan skóg. Auk þessa minja teygir sögusvið Brennu-Njáls sögu sig um allt svæðið og gestum gefin kostur á að upplifa söguna á lifandi og eftirminnilegan hátt. Afþreying er af ýmsu tagi og hentar öllum aldurshópum, s.s. söfn, sýningar, sundlaugar, hestaleigur, áhugaverðar gönguleiðir, íþróttamiðsstöð, golf, gallerí, veiði og margt fleira. Sex félagsheimili eru í sveitarfélaginu með aðstöðu fyrir ættarmót og aðra viðburði. |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() Hvolsvöllur séð ofan af Hvolsfjalli
|