Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs
Ormsvöllur 1, 860 Hvolsvöllur
Kt. 530407-0200
Sími: 487-1200
Fax: 487-1414
Síma- og viðtalstímar: kl. 09:00-12:00 og 13:00-14:00
Netfang: byggingarfulltrui[hjá]rang.is
Starfsmenn:
Rúnar Guðmundsson, byggingar- og skipulagsfulltrúi
Netfang: runar[hjá]hvolsvollur.is
Árni Þorgilsson, aðstoðarmaður
Netfang: arni[hjá]hvolsvollur.is
Byggðasamlagið var stofnað og tók til starfa í mars 2007. Það þjónar allri Rangárvallasýslu og eru 3 sveitarfélög aðilar að því: Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur.
Stjórn Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs:
| Aðalmenn | Varamenn |
| Egill Sigurðsson, formaður | Eydís Indriðadóttir |
| Guðfinna Þorvaldsdóttir, varaformaður | Þorgils Torfi Jónsson |
| Ísólfur Gylfi Pálmason, meðstjórnandi. | Guðlaug Ósk Svansdóttir |
Meðferð skipulags- og byggingarmála er samkvæmt ákvæðum laga nr. 73/1997
Umsóknir um byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi skulu lagðar inn hjá byggingar- og skipulagsfulltrúa sem fer yfir umsóknir og athugar hvort með fylgi nauðsynleg gögn. Byggingar- og skipulagsfulltrúi leggur umsóknir fyrir skipulags- og byggingarnefndir þegar tilskilin gögn hafa verið lögð fram. Skipulags- og byggingarnefndir afgreiða umsóknir sem uppfylla skilyrði skipulags- og byggingarlaga og reglugerða. Sveitarstjórn þarf að staðfesta afgreiðslur skipulags- og byggingarnefnda.
Skipulagsnefnd fjallar um og gerir tillögur um afgreiðslur á skipulagstillögum.
Byggingar- og skipulagsfulltrúi sér um að auglýsa skipulagstillögur samkvæmt heimild sveitarstjórnar.
Framkvæmdaaðilar gera tillögur að deiliskipulagi þar sem nauðsyn ber til. Framkvæmdaaðilar geta gert tillögur að breytingu á aðalskipulagi ef það er nauðsynlegt vegna framkvæmda eða afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi. Sveitarstjórn annast gerð aðalskipulags. Svæðisskipulög taka yfir fleiri en eitt sveitarfélag og eru gerð í samstarfi sveitarstjórna sem skulu mynda um það samvinnunefnd og einnig á vegum Skipulagsstofnunar og Samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendis Íslands.