Steinunn Þórarinsdóttir flytur fyrirlestur um verk sín í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð laugardaginn 27. júlí klukkan 15.00.

Steinunn hefur starfað sem myndlistarmaður í 45 ár og frá byrjun gert fígúratífan skúlptúr. Hún hefur haldið einkasýningar víða um heim í söfnum, galleríum og á opinberum stöðum. Steinunn hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar.