Æskulýðssýning Hestamannafélagsins Geysis verður haldin í Rangárhöllinni á Hellu 1.maí næstkomandi. Í vetur hefur gríðarlegur fjöldi barna lagt stund á hestamennsku í Rangárvallasýslu. Börnin eru á aldrinum 3-18 ára og nú er komið að því að þau sýni okkur hvað þau hafa lært.
Frítt er inn en seldar verða léttar veitingar á staðnum sem renna í sjóð æskulýðsdeildarinnar svo áfram sé hægt að halda úti öflugu starfi.
Hvetjum sem flesta til að taka daginn frá og njóta með okkur.