Sunnudaginn 21. apríl n.k. verður gengið réttsælis um Þríhyrning. Lagt verður upp frá hefðbundnum göngustað við Þríhyrning (þar sem bílum er lagt við Fiská við vesturenda fjallsins). Þar er reiknað með að leggja af stað kl 10 og ganga tekur 4-5 klst en þetta eru nálægt 10 km. Allir með og ekki sérstakur kostnaður - göngustjóri verður Helgi Jóhannesson.
Endilega skráið ykkur hér: https://www.ffrang.is/is/ferdir/skraning-i-ferd-2024 - gott fyrir skipuleggjendur að vita hvað verða ca margir.