- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Heilsu-,
íþrótta- og æskulýðsnefnd
22. fundur Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar í Hvolnum, Pálsstofu, miðvikudaginn 13. janúar kl: 16:30. Mætt voru Bjarki Oddsson, Lárus Viðar Stefánsson, Jónas Bergmann, Helga Guðrún Lárusdóttir, Bóel Anna Þórisdóttir og Ólafur Örn sem ritaði fundargerð.
1.Dansleikir í sveitarfélaginu.
Þarf að búa til reglur um aldursmörk? Nefndin telur að það þurfi að skoða vel hvort hægt sé að búa til aldurstakmörk fyrir dansleiki í sveitarfélaginu þegar þeir eru í húsnæði sveitarfélagsins. Nefndi skorar á sveitastjórn að skoða málið.
2.Endurskoða reglur um íþróttamann ársins.
Reglurnar voru endurskoðaðar og samþykktar.
3.Tour de Hvolsvöllur, pælingar og hugmyndir.
Tour de Hvolsvöllur hjólakeppnin var rædd en málið er á herðum íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, kynninga- og markaðsfulltrúa sem og annarra starfsmanna sveitarfélagsins. Stefnt er að því að halda keppnina laugardaginn 25. júní.
4.Íþróttamiðstöðin/íþróttavöllur
Lagt er til að ráðinn verði vallarstarfsmaður eins og undanfarin ár til að starf á íþróttasvæðinu og gerð yrði starfslýsing fyrir hann.
Rætt var um umgengni í íþróttamiðstöðinni og lagt til að búnar væru til umgengisreglur í íþróttamiðstöð, bæði almennt og fyrir líkamsrækt.
Einnig var aðstaðan á frjálsíþróttasvæðinu rædd og lagt til að ef nýr vikur kæmi í hlaupabrautina og línur merktar yrði Dímon að halda úti æfingu fyrir sumartímann.
5.Leikja- og tómstundanámskeið á árinu 2016
Íþróttafélagið Dímon hefur verið með leikjanámskeið, Tvisturinn með námskeið fyrir 10-12 ára krakka og unglingavinnuna. Nefndarmenn voru hvattir til að koma hugmyndum sínum til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa eða á næsta fund. Nefndarmenn lögðu til að ungmennaráð myndi fjalla um málið.
6.17. júní skemmtun –
Ein umsókn barst en hún var frá Barnakór Hvolsskóla. Umsóknin var samþykkt.
7.Íþrótta og æskulýðsfulltrúi fer yfir nokkur mál:
a.Sparkvöllurinn.
b.Ratleikur í sumar um fjöll í sveitarfélaginu.
c.Félagmiðstöðin og málefni hennar.
d.Vinnuskólinn og nýjungar.
e.Verklagsreglur í samfellu, kynning.
f.Ungmennaráð.
8.Önnur mál.
Fundi slitið kl. 18:30