Það verða 17. júní hátíðarhöld á fjórum stöðum í sveitarfélaginu í ár.
Við hvetjum þá íbúa sem eiga þjóðbúninga að mæta í þeim ef veður leyfir en það setur skemmtilegan svip á hátíðarhöldin.
Þar að auki er lýðveldið 80 ára í ár og þeim mun meiri ástæða til að viðra þjóðbúninga.

 

Á Hvolsvelli

Morgunmatur verður í boði í Hvolnum kl 09:00

Kl 10:00 er opið hús hjá lögreglunni og björgunarsveitinni Dagrenningu.
Teymt verður undir börnum á túninu hjá björgunarsveitinni.

KL 12:10 verður komið saman við Kirkjuhvol og leggur skrúðgangan af stað kl 12:30

Kl 13:00 verður hátíðardagskrá á miðbæjartúninu.

  • Íþróttaálfurinn
  • Fjallkona
  • Unnur Birna syngur
  • Hátíðarræða
  • Hoppukastalar
  • Loftbolti.is

14:30 verða lifandi tónar í Sveitabúðinni Unu

16:00 verður bíósýning að vanda í Hvolnum.

 

Heimaland

17.júní hátíðarhöldin verða að venju haldin að Heimalandi dagskráin hefst kl. 14.00 með hefðbundnu sniði. Kvenfélagið Eygló er 80 ára og Heimaland á 40 ára vígslu afmæli árið 2024, fögnum því á þessum degi:

  • Ávarp fjallkonunnar
  • Hátíðarræða,Tómas Birgir Magnússson oddviti
  • Útileikir, ef veður leyfir
  • Kaffi og kræsingar
  • Happadrætti, veglegir vinningar
  • Verðlaun fyrir 60m hlaup
  • Bikarafhending Búnaðarfélagsins
  • Fjölmennum eins og ávallt.

 

Goðaland

Í Fljótshlíðinni verða hátíðarhöld í Goðalandi með sama móti og sl. ár. Þar hefst dagskráin kl. 15:00 og verða kaffiveitingar seldar á
2.000 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir grunnskólabörn. Tekið er fram að enginn posi er á staðnum.

 

Njálsbúð

Skráning í víðavangshlaup kl 13:30 og í kjölfarið verður hlaupið og farið í leiki.
Kaffisala verður eftir hlaup og leiki.