Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar voru íbúar Rangárþings eystra 2167 talsins þann 1. janúar 2025. Þetta er mesta íbúafjöldi sem sveitarfélagið hefur haft og nemur fjölgunin milli ára 7,97%.

„Sveitarfélagið stendur vel, innviðir eru sterkir, uppbygging heldur áfram sem aldrei fyrr og íbúum okkar heldur áfram að fjölga“, segir Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri Rangárþings eystra.

„Fjölgun íbúa er jákvæð þróun en kallar á mikla ábyrgð. Við þurfum að tryggja að innviðirnir okkar standist þessa fjölgun og að við getum veitt íbúum lögbundna þjónustu.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur þetta hlutverk alvarlega og horfir björtum augum til framtíðarinnar.“

 

Mikil uppbygging íbúða

Fjölgun íbúa kallar á aukna uppbyggingu húsnæðis og þar er Rangárþing eystra engin undantekning. Um 100 íbúðir eru nú í byggingu víðs vegar um sveitarfélagið. Þessar íbúðir eru á mismunandi byggingarstigum, allt frá útgáfu byggingarleyfis til lokaúttektar.

"Það er mikilvægt að uppbygging húsnæðis haldi í við fjölgun íbúa," segir Anton Kári. "Undanfarin fjögur ár höfum við náð að halda jafnvægi á milli íbúðauppbyggingar og íbúafjölgunar."

Sveitarfélagið leggur áherslu á að skapa góðar aðstæður fyrir íbúa sína, bæði nýja og gamla. Með sterkum innviðum, öflugri uppbyggingu og blómlegu atvinnulífi er Rangárþing eystra aðlaðandi staður til að búa og starfa.

Sem dæmi uppbyggingu má nefna nýja götu norðan við Bergþórugerði sem vantar nýtt nafn og minnum við á nafnasamkeppni um götunöfn sem má finna hér: https://www.hvolsvollur.is/is/frettir/nafnasamkeppni-tvaer-nyjar-gotur-a-hvolsvelli

Ný gata norðan við Bergþórugerði, út frá Vallarbraut