Dagana 29.-30. mars fara fram á Selfossi Íslandsleikar. Leikarnir eru fyrir þá sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eða eru með stuðningsþarfir. Leikarnir eru samstarfsverkefni Allir með, Ungmennafélags Selfoss, Körfuknattleiksfélags Selfoss og Árborgar.
Leikarnir eru á vegum Allir með en það er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi. Markmið verkefnisins er að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna, að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun og að allir skuli eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.
Hægt er að skrá sig á vef verkefnisins allirmed.com en þar má einnig finna frekar upplýsingar um leikana.