Leikfélag Austur- Eyfellinga æfir Kardimommubæinn
Leikfélagið fór af stað með miklum krafti eftir áramótin að æfa Kardimommubæinn eftir Torbjörn Egner. Æfingar hafa gengið vel og er áætlað að frumsýna leikritið á Heimalandi 19. mars.
Leikendur eru 19 en 30 – 40 manns koma að sýningunni. Við leggjum mikinn metnað í ljós, tónlist, sviðsmynd og búninga. Til að leikstýra okkur höfum við fengið Sigurð Hróarsson.
Nú er risinn lítill bær, Kardimommubær, á sviðinuu á Heimalandi. Búið að koma fyrir hringsviði til að auðvelda sviðsskiptingar og hús ræningjanna og Soffíu frænku bíða bara eftir smá málningu.
Leikarar eru á öllum aldri frá 10 – 70 ára. Börnin sem taka þátt í leikritinu, hafa öll verið í leiklistarkennslu hjá leikfélaginu undanfarin ár, sum allt að fjögur ár.
Leiklistarkennslan fer fram allan veturinn einu sinni i viku.
Það má segja að allt sveitarfélagið taki þátt í þessari uppfærslu. Þáttakendur koma frá Skógum í austri og Hvolsvelli í vestri og alls staðar að þar á milli. Við höfum notið ákaflega mikillar velvildar í þessum undirbúningi, ekki síst frá sveitarfélaginu, sem hefur lánað okkur bíl til að koma leikurunum á æfingar og húsnæði okkur að kostnaðarlausu. Einnig hefur Stracta Hótel, gefið efni í sviðsmynd. Nánast allir sem við leitum til með smíði, saumaskap, leikumni og annað eru boðnir og búnir til að hjálpa. Þetta jákvæða viðhorf til þessa starfs er ómetanlegt og þakkarvert.