Leikskólinn Örk auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% stöðu við leikskólann Örk á Hvolsvelli. Um er að ræða framtíðarstarf.
Leikskólinn Örk er 4 deilda leikskóli þar sem starfa 95 börn og 28 kennarar og starfsmenn.
Uppeldisstefna Arkarinnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju.
Menntun:
Leikskólakennaramenntun áskilin
Hæfni:
Kennarar og starfsmenn leikskólans þurfa að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði, sjálfstæði og hafa metnað fyrir starfi sínu og vera tilbúnir að vinna að uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námsskrá og í nánu samstarfi við stjórnendur leikskólans.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 31.desember n.k.
Hægt er að sækja um á heimasíðu leikskólans http://www.leikskolinn.is/ork
Nánari upplýsingar um starfið veitir Árný Jóna Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 488 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is