Lífið er kabarett tónleikasýning með eldri söngnemendum Tónlistarskóla Rangæinga!
ATH. einungis tvær sýningar þann 11.apríl, fyrstir koma fyrstir fá!
Í Tónlistarskóla Rangæinga er mikil gróska, mikið af flottum kennurum og fullorðnum nemendum, þeim hefur fjölgað til muna á síðastliðnum árum.
Nú kom upp hugmynd að setja upp Cabaret sýningu þar sem nemendur syngja lög frá árunum 1929-1960, en það eru 11 söngkonur sem taka þátt í verkefninu: Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir (kennari), Anna Margrét Aðalsteinsdóttir, Brynhildur Sighvatsdóttir, Elísabeth Lind Ingólfsdóttir, Heiðbrá Ólafsdóttir, Drífa Nikulásdóttir, Guðrún María Guðmundsdóttir, Harpa M. Kjartansdóttir, Rebekka Katrínardóttir, Sólrún Lilja Pálsdóttir og Glódís Margrét Guðmundsdóttir (meðleikari) en Glódís vinnur þetta verkefni með Aðalheiði og spilar líka á píanó í hljómsveitinni.
Hljómsveitin er skipuð starfsfólki og nemanda skólans og öðrum íbúum Rangárþings:
Glódís Margrét Guðmundsdóttir - Píanó
Sandra Rún Jónsdóttir - Trompet
Guri Hilstad - Trompet
Árni Ólafsson - Bassi
Ingibjörg Erlingsdóttir - Kontrabassi
Mikael Máni Leifsson - Trommur
Hljóðmaður er Arnar Gauti Markússon
Það er svo gaman að koma saman og vinna svona tónlistarverkefni með svo ólíkum hópi fólks á ólíkum stöðum í samfélaginu. Það er mikið lagt í sýninguna, bæði verið í fötum sem passar við tímabilið, lög sungin með ýmsum hreyfingum og tjáningu og annað sem kemur í ljós

Veitingastaðurinn Midgard sér um léttar veitingar og þjónustu sem er innifalin í miðaverði.
Gestir koma með sína eigin drykki.
ALDURSTAKMARK 18 ára.
Sýningar eru tvær:
Föstudaginn 11. apríl
kl. 18.00 og kl. 21.00
Almennt miðaverð er kr. 4900.
Ef pantað er fyrir hópa 6 eða fleiri er verð kr. 4500,-.
Miðapantanir á songleikur@tonrang.is eða í síma 8238264, hægt er að millifæra á kt. 190775-5269 rkn. 0123-26-096367