- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Þetta myndarlega ljón sást á ferð í Gilsbakka 15 um helgina. Ljónið var þó ekki hættulegt enda gert af list úr snjó.
Eins og sést á myndinni hefur þetta ekki verið auðvelt verk og vonum við að við fáum að sjá fleiri flott snjólistaverk á meðan snjórinn endist.
Það á annars vel við að sjá ljón á Hvolsvelli þessa dagana því í morgun var yngsta stig Hvolsskóla með árshátíð. Þar var einmitt flutt metnaðarfullt leikrit um konung ljónanna eða Lion King eins og flestir þekkja úr Disney-teiknimyndinni.