- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Rangárþing eystra auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarmanns skipulags- og byggingarfulltrúa hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra. Aðstoðarmaður starfar með skipulags- og byggingarfulltrúa við almenna meðferð skipulags- og byggingarmála samkvæmt lögum um mannvirki svo sem við móttöku og yfirferð séruppdrátta, úttektir, samskipti við umsækjendur, hönnuði, stofnanir og fleira. Um er að ræða 100% starf. Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til þess að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2024. Umsókn skal skilað á netfangið thorabjorg@hvolsvollur.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Þóra Björg Ragnarsdóttir (thorabjorg@hvolsvollur.is) og Anton Kári Halldórsson (anton@hvolsvollur.is) eða í síma 488-4200.