á áhrifasvæði hugsanlegs Kötlugoss.
Almannavarnanefnd Rangárvalla- og V- Skaftafellssýslu, í samvinnu við Neyðarlínuna og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, boðar til fjarskiptaæfingar á áhrifasvæði hugsanlegs Kötlugoss þann 15. mars n.k. kl. 11:00
Ætlunin er að senda eftirfarandi sms skilaboð í alla farsíma á áhrifasvæðinu til að kanna dreifingu skilaboðanna.
"Æfing. Fjarskiptaæfing vegna Kötlu. Ekki þörf á svörun"
Allir farsímar á þessu svæði ættu að fá ofangreind skilaboð
Unnið hefur verið markvisst að því að bæta neyðarsímsendingar frá því í gosinu í Eyjafjallajökli 2010 og á síðasta ári lauk Neyðarlínan við þróun á kerfi sem sendir skilaboð í alla gsm síma, óháð símkerfi og þjóðerni. Kerfið var prófað á fyrri hluta síðasta árs og gaf það góða raun. Jafnframt hafa verið lagðir talsverðir fjármunir í að byggja upp betri fjarskipti m.a. með nýjum sendum svo boð geti borist til allra á svæðinu. Mikilvægt er að allir þeir sem eru á svæðinu og fái ekki boð í sína síma komi því á framfæri. Tilgangur æfingarinnar er að tryggja að skilaboðin komist til allra og inn á öll svæði sem þau eiga að berast.
Ef skilaboðin koma ekki í síma ykkar þá þarf að senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið:
sveinnr@logreglan.is:
Nafn: _______________________________________________
Símanúmer: ___________________________________________
Símafyrirtæki: _________________________________________
Hvar staðsettur á tímabilinu frá kl. 11 – 12 þann 15. mars:
_______________________________________________________________
Einnig má prenta þessa síðu út hér fyrir neðan og skila inn til lögreglumanna á lögreglustöðvunum á Hvolsvelli, Vík og Kirkjubæjarklaustri.
Fjarskiptaæfing 15 03 2014
Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu