37 þátttakendur voru á námskeiðinu en umsjónarmaður þess var Hannes Stefánsson leiðsögumaður og framhaldsskólakennari.  Alls voru 9 fyrirlesarar á námskeiðinu, margir þeirra landsþekktir fræðimenn á sínu sviði. 

Á fyrsta degi námskeiðsins sýndi Þórður Tómasson söfnin í Skógum, en á síðasta degi þess tóku hjónin á Þorvaldseyri, Ólafur og Guðný, á móti hópnum í hinni nýju og glæsilegu sýningaraðstöðu á Þorvaldseyri þar sem gosunum 2010 eru gerð góð skil ásamt búskaparsögu bæjarins.  Í ítarlegu námskeiðsmati kom fram mikil ánægja þátttakenda með námskeiðið.  M.a. voru þeir beðnir að gefa námskeiðinu í heild einkunn.  Hæsta einkunn var 10, lægsta einkunn 7 en meðaleinkunn 8,6.  Þá kom fram mikill áhugi á ítarlegra námskeiði í svæðisleiðsögn.

Háskólafélag Suðurlands og Fræðslunet Suðurlands stóðu saman að námskeiðinu og var það styrkt af Starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins.  Fyrirlestrarnir fóru fram í Glaðheimum á Selfossi, þangað mættu yfirleitt um 12 þátttakendur, en fjarfundarbúnaður Háskólafélagsins var nýttur til þess að 11 þátttakendur á Hvolsvelli gætu einnig fylgst með og tekið þátt, 7 í Vík og aðrir 7 á Kirkjubæjarklaustri.  Mikil ánægja reyndist vera með þetta fyrirkomulag.

Þetta kemur fram á vef Háskólafélags Suðurlands www.hfsu.is