Þann 4. október n. k.  kl. 16:00 til 17:00 verður opnunarhátíð  Listar í héraði í Gallerý Ormi, Sögusetrinu á Hvolsvelli og eru allir velkomnir.

List í héraði er myndlistarsýning þar sem 10 einstaklingar úr Rangárþingi, sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af því að mála, koma saman og sýna verk sín.

List í héraði er styrkt af Menningarráði Suðurlands. 

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af hópnum sem sýnir afrakstur sinn.