Í Sýnisbók safnamanns rekur Þórður Tómasson ævintýralega sögu safnmunanna í Skógum. Hvernig barkrókunum á Syðstu Grund er á elleftu stundu bjargað frá því að fara í eldinn. Hvernig mögulegar leifar af bókaútgáfu Jóns Arasonar rata undir Eyjafjöll. Hvernig kirkjunnar menn togast á við safnvörðinn um listaverk úr kirkjusögu Eyfellinga. Listasaga fátækrar bændaþjóðar sprettur fram í nákvæmri og vandaðri umfjöllun Þórðar þannig að ekkert safn á Íslandi býr að því að eiga aðra eins heimild um safnkost sinn. Safngripir Skógasafns lifna fyrir augum okkar og bera vitni um listsköpun sem samofin er harðri lífsbaráttu og skemmtilegum munnmælum. „Guð hjálpi þér, barn, að fara svona með rúmfjölina mína sem öll er letruð guðsorði,“ segir prestsekkjan Solveig þegar Björnskotsbörnin undir Eyjafjöllum hafa hnuplað af henni rúmfjölinni til þess að renna sér á í snjónum.

Þetta er 20. bókin sem Þórður sendir frá sér og í tilefni þess var veglegt útgáfuhóf í Eymundsson við Austurstræti sl. föstudagskvöld. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri.