- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir starf félagsráðgjafa í barnavernd laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starfshlutfall til afleysinga í eitt ár með möguleika á áframhaldandi vinnu. Umsóknafrestur er til og með 7. september 2020.
Helstu verkefni
Menntun og Hæfniskröfur
Til greina kemur að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfinu ef enginn félagsráðgjafi sækir um. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu annast félagsþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofur félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 5.300 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.
Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skulu berast á netfangið svava@felagsmal.is fyrir 7. september 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Davíðsdóttir starfandi félagsmálastjóri í síma 487-8125 eða á netfangið svava@felagsmal.is.