Það er gaman að segja frá því að Bæjarins Beztu hafa opnað svokallaðan popup stað á Hvolsvelli í Lava center.

Þar verður að sjálfsögðu boðið upp á landsþekktu og heimsfrægu pylsurnar þeirra með öllu tilheyrandi.

Íslensk kjötsúpa og mexíkósk kjúklingasúpa með dúnmjúku brauði verður þar líka í boði ásamt bakkelsi, sætindum, snakki, gosi og rjúkandi heitu kaffi bæði á könnunni og í vél eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Bæjarins Beztu fjölskyldunni og Lava center.

Það mætti líka segja að Bæjarins Beztu sé komið heim þar sem þau nota að sjálfsögðu SS Pylsur sem eru gerðar hér á Hvolvelli.

Það ættu allir sem að eiga leið hjá þessu fallega bæjarfélagi á Hvolsvelli að stoppa við hjá Bæjarins Beztu í Lava, gæða sér á gómsætum veitingum og kíkja á sýninguna hjá Lava, sjón er sögu ríkari.