Skipulags- og umhverfisnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tillögum til Umhverfisverðlauna Rangárþings eystra 2024

Miklu máli skiptir að íbúar sveitarfélagsins taki nú höndum saman og tilnefni þá sem skarað hafa fram úr í sveitarfélaginu við að fegra umhverfi sitt. 

Nú er upplagt að setja upp vinnuhandskana, kaupa blóm, plöntur og annað garðaprýði og gera garðinn fallegan :)

Verðlaun verða veitt í eftirtöldum flokkum:

Umhverfisverðlaun árið 2024 fyrir garð.
Umhverfisverðlaun árið 2024 fyrir býli.
Umhverfisverðlaun árið 2024 fyrir stofnun / fyrirtæki

Hægt er að skila inn tilnefningum á formi sem má nálgast hér.

Eins er hægt að hafa samband á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 488 4200 fyrir 10. ágúst nk.

 

Skipulags- og umhverfisnefnd Rangárþings eystra