- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Laus störf í mötuneyti Rangárþings eystra
Starfsmaður í eldhúsi
Laus er til umsóknar afleysingastaða til eins árs í mötuneyti Rangárþings eystra með möguleika á framtíðarstarfi. Um er að ræða 100% starf. Viðkomandi starfar undir stjórn forstöðumanns mötuneytis. Starfsstöðvarnar eru þrjár, Kirkjuhvoll, Hvolsskóli og Leikskólinn Örk
Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 8 klst vöktum sem eru morgunvaktir, síðdegisvaktir og helgarvaktir. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Menntun og færnikröfur:
Helgarstarfsmaður aðra hverja helgi
Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er aðra hverja helgi á 8 klst morgun- og síðdegisvöktum sem gæti hentað vel með skóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Menntun og færnikröfur:
Helstu verkefni:
Helstu verkefni starfsins eru aðstoð við matreiðslu, framreiðslu, frágang og þrif á þeirri starfsstöð sem við á.
Fylgigögn með umsóknum:
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður mötuneytis á netfanginu bragi@hvolsvollur.is
Umsóknir skulu berast á netfangið bragi@hvolsvollur.is ásamt umbeðnum fylgigögnum.