- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Leikskólinn Aldan er nýr 8 deilda leikskóli á Hvolsvelli. Þar starfa um 100 börn og 35 starfsmenn. Gildi Öldunnar eru samskipti, virðing og samvinna.
Uppeldisstefna Öldunnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi og gagnrýnin, tileinki sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starfi. Að börnin geti tekið ígrundaðar ákvarðanir byggðar á þekkingu þeirra og gildismati.
Leikskólinn er að innleiða jákvæðan aga í starfinu ásamt því að vinna eftir handbók um snemmtæka íhlutun í máli og læsi sem leikskólinn vann sem þróunarverkefni.
100% stöður kennara :
Starfssvið : Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Reynsla af kennslu á leikskólastigi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Góð færni í samskiptum
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi, hreint sakarvottorð og hafa náð þrepi C1 í íslensku samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2024. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá og meðmælum á heimasíðu leikskólans aldan.leikskolinn.is undir flipanum - Upplýsingar – Starfsumsóknir.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir skólastjóri í síma 488 - 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.