Sveitarstjórn hefur samþykkt nýja skólastefnu fyrir sveitarfélagið. Skólastefnan tekur til áranna 2015- 2020 og nær yfir grunn- og leikskóla sveitarfélagsins. Skólastefna var kynnt á kynningarfundi í gær 23. mars. Arnheiður Dögg Einarsdóttir formaður fræðslunefndar sveitarfélagsins kynnti stefnuna.
Skólastefnan var unnin af fræðslunefnd Rangárþings eystra og ráðgjafa frá Capacent og var hún unnin á grundvelli hugmynda sem fram komu á skólaþingi sem haldið var á vegum fræðslunefndarinnar. Með þessu hefur skólastefna og framtíðarsýn Rangárþings eystra í skólamálum verið lögð. Hér má sjá skólastefnuna; Skólastefna Rangárþings Eystra 2015-2020.pdf