10. bekkur í Hvolsskóla verður með sjoppu og sölubása til leigu á Kjötsúpuhátíðinni. Þetta er hluti af fjaröflun þeirra fyrir útskriftarferðinni sem verður farinn í vor.

Sjoppan verður opin í tjaldinu á meðan dagskrá er þar. Athugið að á sunnudeginum verður hún í íþróttahúsinu.

10.bekkur verður einnig með sölutjald á Kjötsúpuhátíðinni 2024 - Tryggðu þér pláss í hátíðartjaldinu á Kjötsúpuhátíðinni. Sölumarkaður verður í tjaldinu laugardaginn 31 ágúst milli kl 13:00 og 16:00.

Verð á sölubás er 10 000 ISK
Innifalið í verði er 1 borð
Rafmagn er aukalega 2000kr
Hægt er að tryggja sér bás með því að senda fyrirspurn á bas.leigja@gmail.com eða hafa samband við Hildi Þóru í síma 895-7667.