Halldór Gunnar Pálsson, Önfirðingur og kórstjóri Fjallabræðra er um þessar mundir að vinna að stóru verkefni og stefnir að því að ná 30.000 manns til að syngja inn á lag sem hann hefur verið að vinna fyrir Fjallabræður. Lagið hefur hlotið nafnið Ísland.


Halldór hefur flakkað undanfarið um Vestfirðina og nú þegar hafa um 700 manns sungið fyrir hann.


Nú er komið að því að hefja víðreisn um landið og hvað er betra en að byrja ferðina á söngelskum Rangæingum.

Við munum að sjálfsögðu ekki bregðast manninum og stefnum á að syngja fyrir hann sunnudaginn 15. apríl kl. 15.00 í Hvolnum Hvolsvelli.


Upptakan sjálf tekur ekki langan tíma. Halldór rennur yfir lagið fyrir upptöku, þannig að allir geta lært það. 


Allir geta tekið þátt!

Allt um verkefnið má finna á heimasíðunni www.thjodlag.is
Facebooksíða verkefnisins (muna að líka við hana!): http://www.facebook.com/thjodlag
Lagið sem verður sungið: http://thjodlag.is/texti-lagsins/

Nótur lagsins: http://thjodlag.is/notur-vidlagsins/