Fundur fjallskilanefndar Fljótshlíðar haldinn á Staðarbakka þann 12. ágúst 2015 kl 8:30
Mættir voru allir nefndarmenn, Kristinn Jónsson, Ágúst Jensson og Rúnar Ólafsson.
1.Farið var yfir ársreikninga síðasta árs.
Samþykkt var að 1. leit á Grænafjall verði farin föstudaginn 11.sept.
Byggðarsmölun fari fram 19.sept.
Samþykkt var að álögð fjallskil 2015 verði eftirfarandi. Fast verð per. jörð kr. 3000 samkvæmt afréttarskrá og 65 kr. á per ásetta kind.
Greiðsla fyrir leitir og réttarferðir verði óbreytt frá fyrra ári.
Samþykkt var að smala Rauðnefsstaði líkt og verið hefur og greiðslu gjalda af þeim.
Skipað var í leitir og réttarferðir.
2.Borið var á afréttinn 26.júní samtals 21 sekk af 25.5 ásamt 100 kg af grasfræi og tvo vagna af ónýtum rúllum.
10 bændur komu að dreifingu af þessu.