- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Fundargerð
19. fundur í umhverfis- og náttúruverndarnefnd Rangárþings eystra, haldinn mánudaginn 13. ágúst 2018, kl. 16:00 á sveitarstjórnarskrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, Hvolsvelli.
Mættir nefndarmenn: Ingibjörg Erlingsdóttir, Katrín Birna Viðarsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Þorsteinn Jónsson og Anton Kári Halldórsso, sveitarstjóri. Hallur Björgvinsson boðaði forföll og í hans stað er mættur Sigurmundur Páll Jónsson.
Anton Kári Halldórsson ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1.Umhverfisverðslaun Rangárþings eystra 2018.
2.Sorpmál, flokkun og gámasvæði.
3.Hvatning á hreinsun og fegrun á lögbýlum, fyrirtækjum og híbýlum manna í sveitarfélaginu.
4.Hreinsun meðfram þjóðvegum.
5.Önnur mál
1.Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra 2018.
Rætt um tilnefningar til umhverfisverðlauna Rangárþings eystra. Nefndarmenn hvattir til að koma því á framfæri við fólk að skila inn tilnefningum. Nokkrar tilnefningar hafa nú þegar borist.
2.Sorpmál, flokkun og gámasvæði.
Rætt um mikilvægi flokkunnar á sorpi. Nefndin lýsir yfir áhuga á því að koma frekar að sorpflokkunarmálum í Rangárvallasýslu. Nefndin óskar eftir því að haldinn verði fundur með Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. og öllum umhverfis- og náttúruverndarnefndum í Rangárvallasýslu með aðalháerslu á flokkun sorps í sýslunni. Einnig telur nefndin mikilvægt að ræða á fundinum gámasvæðin sem staðsett eru víðsvegar í sýslunni. Nefndin brýnir fyrir sveitarfélaginu að sýna gott fordæmi í flokkun sorps og koma upp flokkunartunnum í sínum mannvirkjum og á opnum svæðum.
3.Hvatning á hreinsun og fegrun á lögbýlum, fyrirtækjum og híbýlum manna í sveitarfélaginu.
Ræddar leiðir til að hvetja íbúa og fyrirtæki til fegrunnar umhverfis í Rangárþingi eystra. Nefndin samþykkir að gera sig gildandi í hvatningum til íbúa og fyrirtækja sveitarfélagsins um hreinsun og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu.
4.Hreinsun meðfram þjóðvegum.
Rætt um hreinsun meðfram þjóðvegum í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að sveitarstjóra verði falið að vinna að góðri lausn í samráði við Vegagerðina.
5.Önnur mál.
Rætt um fjölfarna ferðamannastaði sem eru á einkalandi. Margir staðir farnir að bíða skaða vegna átroðnings. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að unnið verði í samráði við landeigendur um úrbætur á þessum stöðum með t.d. umsóknum um styrki í framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Fundi slitið kl. 17:36