- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
240. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, mánudaginn 11. júní 2018, kl. 13:00.
Mætt: Lilja Einarsdóttir, Benedikt Benediktsson, Rafn Bergsson, Anton Kári Halldórsson, Elín Fríða Sigurðardóttir, Guðmundur Viðarsson og Christiane L. Bahner.
Fundargerð ritaði Árný Lára Karvelsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi.
Bætt á dagskrá liður 7 Aukaaðalfundarboð SASS og liður 8 Fundarboð: Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 26. – 28. september 2018:
Gengið var til formlegrar dagskrár:
Erindi til sveitarstjórnar:
1.Kosning oddvita.
Lagt til að Lilja Einarsdóttir verði oddviti.
Samþykkt með 6 atkvæðum LE, BB, GV, AKH, RB, EFS. 1 situr hjá CLB.
2.Kosning varaoddvita.
Lagt til að Benedikt Benediktsson verði varaoddviti.
Samþykkt með 6 atkvæðum LE, BB, GV, AKH, RB, EFS. 1 situr hjá CLB.
3.Ráðning sveitarstjóra.
Tillaga frá fulltrúa L-lista
Lagt er til að auglýst verði eftir sveitarstjóra og hann fagráðinn í ljósi þess að það hafi verið á stefnuskrá framboða meirihluta sveitarstjórnarmanna.
Felld með 6 atkvæðum LE, BB, GV, AKH, RB, EFS. 1 greiðir atkvæði með tillögunni CLB.
Bókun fulltrúa B-lista
Á stefnuskrá B-lista var vissulega eitt af málefnunum að sveitarstjóri yrði fagráðinn. Í aðdraganda kosninga var það ljóst að þetta sameiginlega málefni var hjá framboðum L- og B- lista og höfðu fulltrúar B-lista orð á því við oddvita L-lista að hugsanlega yrði samstarfsgrundvöllur á þeim forsendum. Í kjölfar kosninganna, þegar úrslitin voru ljós, höfðu fulltrúar B-lista samband við oddvita L-listans og óskuðu eftir samtali. Eftir stuttar þreifingar gaf oddviti L-lista yfirlýsingu að hann vildi fremur hefja viðræður við fulltrúa D-lista um samstarf. Ekki náðist því samstarfsgrundvöllur byggður á þessu sameiginlega stefnumáli.
Sameiginleg tillaga fulltrúa B- og D- lista
Lagt er til að fulltrúi D-lista, Anton Kári Halldórsson, verði ráðinn sveitarstjóri Rangárþings eystra til tveggja ára. Að þeim liðnum verði fulltrúi B-lista Lilja Einarsdóttir ráðin sveitarstjóri Rangárþings eystra til tveggja ára samkvæmt samstarfssamningi sem framboðin hafa gert með sér.
Varaoddvita er falið að gera drög að ráðningarsamning sem lagður verður fram á næsta fundi.
Samþykkt með 6 atkvæðum LE, BB, GV, AKH, RB, EFS. 1 á móti CLB.
Bókun fulltrúa L- lista
L-listi hefur alla tíð staðið fyrir því að sveitarstjóri eigi að vera fagráðinn eftir auglýsingu. Sveitarstjórinn sinnir ýmsum lögbundnum hlutverkum sem fara ekki vel saman með pólitísku hlutverki sveitarstjórnarmanna. Því er ég að greiða atkvæði gegn því að umræddir fulltrúar verði ráðnir sveitarstjórar. Þar að auki tel ég ekki ráðlegt að skipta á sveitarstjóra á tveggja ára fresti þar sem starfið er umfangsmikið.
4.Tillögur um skipun í nefndir, samstarfsráð og stjórnir sbr. 49. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra frá 2014, auk fulltrúa í stjórn Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Nefndir og ráð
Aðalmaður Varamaður
Almannavarnanefnd (1):
Anton Kári Halldórsson Lilja Einarsdóttir
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. (1)
Anton Kári Halldórsson Elín Fríða Sigurðardóttir
Byggðarráð (3):
Elín Fríða Sigurðardóttir Guðmundur Jón Viðarsson
Benedikt Benediktsson Lilja Einarsdóttir
Christiane L. Bahner Arnar Gauti Markússon
Stjórn Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu (1)
Lilja Einarsdóttir Benedikt Benediktsson
Félagsmála- og barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu – sameiginleg nefnd (2):
Gyða Björgvinsdóttir Guri Hilstad Ólason
Árný Hrund Svavarsdóttir Elín Fríða Sigurðardóttir
Fjallskilanefnd Fljótshlíðar (1):
Vilmundur Rúnar Ólafsson Ólafur Þorri Gunnarsson
Fjallskilanefnd Vestur-Eyjafjalla (2):
Ásgeir Árnason Óli Kristinn Ottósson
Baldur Björnsson Jón Örn Ólafsson
Fræðslunefnd Grunnskóla og Leikskóla (5):
Lilja Einarsdóttir Þóra Kristín Þórðardóttir
Bjarki Oddsson Rafn Bergsson
Esther Sigurpálsdóttir Guðmundur Jón Viðarsson
Páll Eggertsson Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir
Arnar Gauti Markússon Sigurmundur Páll Jónsson
Katla jarðvangur/Geopark stjórn (1):
Anton Kári Halldórsson Lilja Einarsdóttir
Heilsu-íþrótta- og æskulýðsnefnd (5):
Sigurður Þór Þórhallsson Helgi Jens Hlíðdal
Þóra Kristín Þórðardóttir Anna Rún Einarsdóttir
Páll Eggertsson Baldur Ólafsson
Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir Ragnheiður Jónsdóttir
Eyrún María Guðmundsdóttir Guðgeir Óskar Ómarsson
Héraðsnefnd Rangæinga (3):
Anton Kári Halldórsson Elín Fríða Sigurðardóttir
Lilja Einarsdóttir Benedikt Benediktsson
Guðmundur Jón Viðarsson Rafn Bergsson
Hula bs. Sorpsamlag Skógum (1):
Benedikt Benediktsson Rafn Bergsson
Jafnréttisnefnd (3):
Guri Hilstad Ólason Eggert Birgisson
Arnar Gauti Markússon Magnús Benónýsson
Harpa Mjöll Kjartansdóttir Kristján Friðrik Kristjánsson
Landbúnaðarnefnd (5):
Ágúst Jensson Þórir Már Ólafsson
Jóhanna Elín Gunnlaugsdóttir Sigrún Þórarinsdóttir
Guðmundur Ólafsson Anna Runólfsdóttir
Guðmundur Jón Viðarsson Páll Eggertsson
Esther Sigurpálsdóttir Elín Fríða Sigurðardóttir
Markaðs- og atvinnumálanefnd (5):
Sigurður Þór Þórhallsson Óli Jón Ólason
Þóra Kristín Þórðardóttir Arnheiður Dögg Einarsdóttir
Þuríður Vala Ólafsdóttir Arnar Gauti Markússon
Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir Elín Fríða Sigurðardóttir
Anton Kári Halldórsson Guðmundur Jón Viðarsson
Menningarnefnd (5):
Lea Birna Lárusdóttir Sigurður Þór Þórhallsson
Guri Hilstad Ólason Heiðar Þór Sigurjónsson
Magnús Benónýsson Sara Ástþórsdóttir
Friðrik Erlingsson Katrín Óskarsdóttir
Harpa Mjöll Kjartansdóttir Anna Birna Þráinsdóttir
Orku- og veitunefnd (5):
Lárus Einarsson Arnheiður Dögg Einarsdóttir
Gísli Davíð Sævarsson Jóhanna Elín Gunnlaugsdóttir
Arnar Gauti Markússon Anna Runólfsdóttir
Guðmundur Jón Viðarsson Esther Sigurpálsdóttir
Anton Kári Halldórsson Einar Viðar Viðarsson
Samgöngu- og umferðarnefnd (5):
Bjarki Oddsson Sigurður Þór Þórhallsson
Lea Birna Lárusdóttir Arnheiður Dögg Einarsdóttir
Baldur Ólafsson Anna Birna Þráinsdóttir
Halldór Óskarsson Kristján Friðrik Kristjánsson
Guðmundur Ólafsson Anna Runólfsdóttir
Skipulagsnefnd Rangárþings eystra (5):
Víðir Jóhannsson Guri Hilstad Ólason
Lilja Einarsdóttir Rafn Bergsson
Anna Runólfsdóttir Guðmundur Ólafsson
Anton Kári Halldórsson Guðmundur Jón Viðarsson
Esther Sigurpálsdóttir Elín Fríða Sigurðardóttir
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.
Benedikt Benediktsson Rafn Bergsson
Stjórn Tónlistarskóla Rangárvallasýslu
Anton Kári Halldórsson Lilja Einarsdóttir
Nefndarskipan samþykkt samhljóða
Lilja Einarsdóttir víkur af fundi og Guri Hilstad Ólason tekur hennar sæti.
5.Sögusetrið: Rekstrarleigusamningur við Gistiheimili Íslands ehf.
Samningurinn borinn upp og samþykktur samhljóða.
Lilja tekur aftur sæti á fundinum.
6.Tillaga fulltrúa B-lista um gjaldfrjáls námsgögn nemenda Hvolsskóla.
Fulltrúar B-lista leggja til að efnisgjald sem foreldrar hafa greitt fyrir námsögn barna sinna í Hvolsskóla verði felld niður frá og með næsta skólaári 2018-2019 og fengju nemendur í 1-10. bekk þá stílabækur, blöð, plastvasa og möppur ýmiskonar sem þörf er á frá skólanum, endurgjaldslaust.
Auk þess leggjum við til að nemendum í 1. bekk ár hvert verði afhentur endurgjaldslaust grunnpakki með ritföngum þ.e. blýantar, strokleður, litir o.s.frv. skv. því sem skólinn leggur upp með sem grunnþörf við upphaf skólagöngu.
Kostnaður vegna tillögunnar væri um 1 milljón króna á ársgrundvelli.
Greinargerð:
Samkvæmt upplýsingum frá skólastjóra er staðan þannig í dag að foreldrar nemenda í 1.-7. bekk greiða um það bil 3000 krónur á ári, aðeins mismunandi eftir bekkjum, fyrir námsgögn sem skólinn sér um að panta í gegnum heildsölu. Það eru stílabækur, möppur og annað slíkt. Foreldrar þurfa að sjá til þess að nemendur séu með öll ritföng, þ.e. blýanta, strokleður, liti og skæri sem og vasareikni eftir því sem við á, í töskunum. Inni í stofum er þó eitthvað af ritföngum og vasareiknum til að grípa til ef einhvern vantar.
Fyrir nokkrum árum greiddu foreldrar efnisgjöldin fyrir öllum námsgögnunum og ritföngum en skólinn sá um að versla þau í gegnum heildsala. Það gafst ekki vel. Nemendur báru litla virðingu fyrir ritföngum sem fundust gjarnan brotin og eyðilögð á lóð skólans og sífellt þurfti því að endurnýja hlutina.
Foreldrar nemenda í 8.-10. bekk sjá alfarið um að kaupa námsgögn fyrir sín börn.
Með því að útvega nemendum í 1. bekk ritfangapakka ættu allir nemendur að sitja við sama borð í upphafi skólagöngu. Hins vegar er einnig verið að stuðla að ábyrgri neyslu skv. 12. markmiði sameinuðu þjóðanna með því að fela foreldrum og nemendum þá ábyrgð að varðveita það sem skaffað er í 1. bekk af ritföngum, og það yrði í höndum foreldra að fylla á og bæta í pennaveskið þau ár sem barnið á eftir af skólagögnunni, enda duga ritföng alla jafna fleiri en eitt skólaár og sumt í nokkur ár.
Í Hvolsskóla hefur verið gríðarlega góð nýting á stílabókunum og þeim hlutum. Þær hafa verið geymdar í kössum nemenda og kláraðar á nýju skólaári, ef þær hafa ekki klárast. Mikilvægt er að horfa til umhverfissjónarmiða. Við viljum sporna við sóun.
Tillagan er unnin í fullu samráði við skólastjóra.
Lilja Einarsdóttir, B-lista
Benedikt Benediktsson, B-lista
Rafn Bergsson, B-lista
Tillagan borin upp og samþykkt samhljóða.
7. Fundarboð: Aukaaðalfundur SASS:
Tillögur að fulltrúum
Aðalmenn Varamenn
Anton Kári Halldórsson Christiane L. Bahner
Elín Fríða Sigurðardóttir Guðmundur Jón Viðarsson
Benedikt Benediktsson Lilja Einarsdóttir
Rafn Bergsson Guri Hilstad Ólason
Aðrir fulltrúar
Christiane L. Bahner
Tillagan samþykkt samhljóða.
8. Fundarboð: Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 26. – 28. september 2018:
Tillögur að fulltrúum
Aðalmenn Varamenn
Lilja Einarsdóttir Benedikt Benediktsson
Anton Kári Halldórsson Elín Fríða Sigurðardóttir
Tillagan samþykkt samhljóða.
Fundargerðir:
1.7. fundur stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga 30.05.2018. Staðfest.
2.56. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu 29.05.2018. Staðfest.
3.32. fundur stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýlsu. 22.05.2018. Staðfest.
4.Aðalfundur stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. 22.05.2018. Staðfest.
5.33. fundur Bergrisans 08.05.2018. Staðfest.
6.532. fundur stjórnar SASS 03.-04.05.2018. Staðfest.
7.860. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Staðfest.
Mál til kynningar:
1.Samgöngu- og sveitarstjórnarráð: Ný reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
2.Afmælisnefnd vegna aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands.
3.Juris slf.: Upplýsingabréf vegna Rangárþings eystra vegna endurskoðunar ársins 2017.
4.Landskerfi bókasafna hf.: Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2018.
5.Jafnréttisstofa: Skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum.
Bréfinu vísað til kynningar í Jafnréttisnefnd Rangárþings eystra.
6.Aukaaðalfundur Bergrisans bs. 2018.
Tilgreindir fulltrúar Rangárþings eystra:
Aðalmenn Varamenn
Anton Kári Halldórsson Lilja Einarsdóttir
Elín Fríða Sigurðardóttir Guri Hilstad Ólason
Christiane L. Bahner Harpa Mjöll Kjartansdóttir
Rafn Bergsson Guðmundur Jón Viðarsson
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn fimmtudaginn 21. júní 2018, kl. 12:00.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:45.