- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Í 2. gr. þriðja lið komi.......eftirlit með stofnunum og samstarf við þau félög, sem vinna að velferðarmálum og fylgjast með því að þau vinni....
Í 11gr. skuli standa ....enda skili hann efni þess til nefndarformanna a.m.k þremur sólarhringum fyrir fund.
3. Tillaga um fjölmenningarráð – erindi frá sveitarstjórn.
Tillaga D-lista um stofnun fjölmenningarráðs.
Fulltrúar D-lista leggja til að stofnað verði fjölmenningarráð, sem skipað verði þremur íbúum sveitarfélagsins af erlendu bergi brotnum. Hver framboðslisti tilnefni einn fulltrúa. Ráðið verði vettvangur fyrir hugmyndir, ábendingar og áherslur í samfélagsmálum. Fundargerðir ráðsins verða lagðar fyrir reglulega sveitarstjórnarfundi til staðfestingar.
Greinargerð:
Á síðasta kjörtímabili var ráðinn þjónustufulltrúi innflytjenda að fyrirmynd meistaraverkefnis Birnu Sigurðardóttur um innflytjendamál sem bar nafnið „Eitt samfélag í orði og á borði.“ Ljóst þykir að mikil eftirspurn er eftir þjónustu sem þessari. Hins vegar teljum við mikilvægt að skapaður verði vettvangur fyrir áhugasama einstaklinga til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins og stuðla þannig að fjölbreyttu og samheldnu samfélagi. Fjölmenningarráð er kjörinn vettvangur til slíks.
Hvolsvelli, 1. september 2014
Kristín Þórðardóttir
Birkir Arnar Tómasson
Samþykkt að fresta afgreiðslu tillögunnar og vísa henni til velferðarnefndar til umfjöllunar.
Það er álit velferðarnefndar að fjölmenningarráð skuli ekki stofnað að sinni. Málaflokkurinn fellur undir Velferðarnefnd og teljum við hana geta sinnt honum með fullnægjandi hætti,meðal annars vegna þess að í nefndinni sitja nú tveir erlendir íbúar, sem þekkja málefnin af eigin raun.Velferðarnefnd vill hins vegar leggja aukna áherslu á málaflokkinn sérstaklega með því að skerpa á starfi þjónustufulltrúa erlendra íbúa, sem starfar í 25 % starfi á hreppsskrifstofu og hafa komið upp ýmsar hugmyndir um það með hvaða hætti það sé gert.
Velferðarnefnd er tilbúin til að endurskoða ákvörðun sína varðandi fjölmenningarráð síðar ef þörf er talin á því.
4. Fundaáætlun
Ákveðið var að funda mánaðarlega og oftar ef þörf krefur, skuli fundirnir vera haldnir síðasta fimmudag í hverjum mánuði kl. 20.30
5. Náið samstarf við stofnanir og félög
Rætt var um að fá umsagnaraðila á fundi til að fá upplýsingar um og stofnana og félaga sem starfandi eru í sveitarfélaginu. Talið er brýnt að fá stöðumat á málefnum Kirkjuhvols og er því fyrirhugað að bjóða hjúkrunarforstjóra Kirkjuhvols á næsta fund til að upplýsa nefndina um málefni heimilisins.
Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 11.30
Bergur Pálsson
Christiane L. Bahner
Kristján Fr. Kristjánsson
Ingibjörg Marmundsdóttir ritaði fundargerð.