- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) sem haldinn var miðvikudaginn 13. nóvember, var Noelinie Namayanja sem stundaði nám hjá Fræðslunetinu valin fyrirmynd í námi fullorðinna ásamt Sigurði K. Guðmundssyni sem stundaði nám hjá Mími. Viðurkenningin er veitt árlega þeim einstaklingum sem hafa breytt stöðu sinni eftir þátttöku í úrræðum FA, sýnt framúrskarandi árangur, frumkvæði, kjark og náð að yfirstíga ýmiss konar hindranir.
Noelinie kom til Íslands árið 2013 og fór þá að vinna við umönnun á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík. Síðar flutti hún í Landeyjarnar og fór að vinna í skólaeldhúsinu í Hvolsskóla. Þar hitti hún Steinunni verkefnastjóra Fræðslunetsins sem kynnti fyrir henni íslenskunámskeið. Noelinie skráði sig í Íslensku II sem var töluverð áskorun fyrir hana ekki síst þar sem kennarinn var pólskur og stundum fóru útskýringar fram á pólsku.
Eftir þessa prófraun fann Noelinie að hún vildi læra meira. Hún bókaði viðtal hjá Eydísi Kötlu náms- og starfsráðgjafa Fræðslunetsins sem kynnti fyrir henni hvaða nám væri í boði hjá Fræðslunetinu. Haustið 2018 skráði Noelinie sig í Menntastoðir og Félagsliðabrú. Vorið 2019 lauk Noeline 27 einingum í Menntastoðum og haustið 2020 útskrifaðist hún sem félagsliði. Samhliða náminu vann hún á hjúkrunarheimilunum Klausturhólum og Seltjörn.
Veturinn 2019 þegar Noelinie var að vinna á Seltjörn var margt starfsfólk í einhvers konar námi og þar kviknaði áhugi hennar á að fara í sjúkraliðanám. Hún skráði sig í FB og útskrifaðist sem sjúkraliði vorið 2022.
Í dag er Noelinie að vinna á Grensás endurhæfingardeild Landspítalans og hefur samhliða sinni vinnu geta tekið fjöldamörg styttri námskeið fyrir sjúkraliða. Markmiðið hennar er að læra öldrunarhjúkrun. Í þakkarorðum Noelinie sagði hún ástæðu þess, að hún ætlaði að fara í nám og fá starfsréttindi vera: ,,Af því að ég veit ég get það.“
https://fraedslunetid.is/af-thvi-ad-eg-veit-eg-get-thad/