- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Kjörfundir í Rangárþingi eystra
Kjörfundir í Rangárþingi eystra, vegna forsetakosninganna, laugardaginn 27. júní 2020, verða sem hér segir:
Í Félagsheimilinu Heimalandi kjósa íbúar austan Markarfljóts og í Félagsheimilinu Hvoli kjósa íbúar vestan Markarfljóts.
Kjörstaðir verða opnir frá klukkan:
9:00 – 18:00 í Félagsheimilinu Heimalandi og
9:00 – 22:00 í Félagsheimilinu Hvoli
Kjósendur eru beðnir að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Austurvegi 4, Hvolsvelli á skrifstofutíma fram að kjördegi.
Skrifstofan er opin
Mánudaga - fimmtudaga 9-12 og 13-16
föstudaga 9-13
Bent er á upplýsingavef http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni:
https://www.skra.is/thjonusta/einstaklingar/kjorskra-og-kosningarettur/
Yfirkjörstjórn