- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV).
Kórónaveirur eru þekkt orsök kvefs og þær geta einnig valdið alvarlegri lungabólgu og jafnvel dauða. Veiran sem um ræðir núna er áður óþekkt. Faraldsfræðilegar upplýsingar eru enn takmarkaðar og því er margt óljóst varðandi útbreiðslu sjúkdómsins. Það er ekkert bóluefni til gegn þessari veiru og því ekki hægt að bólusetja við henni. Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Veiran getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4-8 degi veikinda.
Enginn einstaklingur hefur hingað til greinst með veiruna hér á landi en embætti landlæknis og sóttvarnalæknir hafa lýst yfir óvissustigi í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna hinnar nýju kórónaveiru.
Umdæmis- og svæðislæknar sóttvarna og sóttvarnalæknir hafa samstarf um framkvæmd nauðsynlegra sóttvarna og njóta aðstoðar lögregluyfirvalda ef með þarf. Umdæmislæknir sóttvarna í umdæminu er Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga HSU og svæðislæknir sóttvarna er Björn Björnsson, læknir HSU Hvolsvelli.
Hvað get ég gert til að forðast smit?
Handþvottur og spritt er mikilvægast til að forðast smit. Einnig skal varast úðasmit.
Viðbrögð ef grunur er um að einstaklingur sé smitaður:
Almennar ráðleggingar um hreinlæti gilda og eru afar mikilvægar til að draga úr dreifingu veirunnar:
Gagnlegar upplýsingar er að finna á heimasíðu embættis landlæknis og hjá almannavörnum. Rangárþing eystra beinir því til íbúa að fylgjast með upplýsingum þar.
Almannavarnir – vefsíða
Almannavarnir – Facebook
Landlæknir – vefsíða
Landlæknir – Facebook