- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Trjágróður á lóðamörkum
Umhverfis- og garðyrkjustjóri Rangárþings eystra vill góðfúslega minna íbúa sveitarfélagsins á að snyrta þarf trjágróður á lóðamörkum. Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eftirfarandi atriði þarf að hafa í huga vegna trjágróðurs á lóðamörkum:
Lóðarhafar bera ábyrgð á gróðri innan lóðamarka
Samkvæmt byggingarreglugerð 112/2012, gr. 7.2.2, eru þær skyldur settar á lóðarhafa/garðeiganda að halda vexti trjá eða runna innan lóðarmarka. Þar segir jafnframt:
,,Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun”.
Yfirlitsmynd af hæðarmörkum trjágróðurs
Umhverfis- og garðyrkjustjóri Rangárþings eystra