Frír prufutími fimmtudaginn 4. ágúst kl. 17:15. Allir að mæta, líka karlkynið !!!
Verið er að vinna við endurbætur á lóðinni við Leikskólann Örk á Hvolsvelli.
Nú bendir flest til þess að eldgosinu í Grímsvötnum sé lokið, vill sveitarstjórn Rangárþings eystra vekja athygli á því að nú eru ferðaþjónustuaðilar og aðrir íbúar tilbúnir að taka á móti ferðamönnum og öðrum góðum gestum.
Rangárþing, Suðurströndin, Mýrdalur og uppsveitir Árnessýslu að mestu laus við ösku
Ráðherrar velferðarmála og sjávar- og landbúnaðarmála, Guðbjartur Hannesson og Jón Bjarnason, koma við á Hvolsvelli í dag á leið sinni austur í Skaftafellssýslur. Velferðarráðherra kemur til með að ræða málefni Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Kirkjuhvols við sveitarstjóra.