Helgina 19. og 20.júlí verður malarhjólakeppnin The Rift haldin á Hvolsvelli og nágrenni.

Keppnin var fyrst haldin 2019 og hefur farið vaxandi síðan. Uppselt er á keppnina í ár og nýtur hún mikilla vinsælda hjá bæði innlendu og erlendu hjólafólki. Í ár er fjöldi keppenda 1200 manns og fylgir því bæði aðstoðarfólk og stuðningsfólk. Það verður því nóg um að vera á Hvolsvelli þessa helgina.

Hjólaðar eru tvær vegalengdir, annars vegar 100km leið og hinsvegar 200km leið sem liggur kringum Heklu.

The Rift hefst með upphitun á föstudeginum þar sem hjólað verður 45km inn á fjallabaksleið syðri.

Keppnin sjálf hefst svo kl 07:00 á laugardeginum 20.júlí og verður upphaf og endir keppninnar við veitingahúsið Valhalla.
Von eru á fyrstu keppendum í mark upp úr hádegi og hvetjum við alla til að koma og skapa stemningu við marklínuna.
Hægt verður að kaupa sér mat, drykk og njóta stemningarinnar með keppendum á Valhalla eftir keppni.

Við viljum einnig benda á að lokanir verða á svæðinu í kringum rásmarkið og hefjast þær upp úr hádegi á föstudeginum 19.júlí eins og sjá má á kortinu hér fyrir neðan. 

Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á vefsíðunni https://www.therift.bike/