Nú er á landinu hópur fólks frá Skotlandi í Leonardo námsferð sem mun ferðast um í vikutíma og kynna sér íslenskan mat og menningu undir vinnuheitinu “Exploring the Natural tastes of Iceland”. Hópurinn samanstendur af fagfólki sem hefur komið að ferðamálum í Skotlandi frá ýmsum hliðum um árabil í einkageiranum og opinberum störfum. Skotarnir munu ferðast um Suðurland og kynna sér meðal annars ýmis matartengd verkefni í Uppsveitum Árnessýslu . Í tilefni af heimsókninni verður síðan efnt til málþings miðvikudaginn 12. júní í Hvolnum á Hvolsvelli. Þar gefst gott tækifæri til að skiptast á fróðleik og miðla á báða bóga, fyrirlesarar eru skoskir og íslenskir og tími til umræðna. Allir áhugasamir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hópurinn er kominn til landsins í samvinnu við Leonardo, Markaðsstofu Suðurlands, Ferðamálafulltrúa Uppsveita Árnessýslu og Hólaskóla. Nánari upplýsingar á www.markadsstofa.is og www.sveitir.is
Opið Málþing
Hvolnum Hvolsvelli miðvikudaginn 12. júní 2013
09.15 – 09.30 Welcome /opnun
09.30 – 10.00 Kynning 1 – Laufey Haraldsdóttir, Assistant Professor, Holar University College
10.00 – 10.30 Kynning 2 – Matthew Thomson, Jamie Oliver’s Fifteen Cornwall/Cornwall Foundation of Promise
10.30 – 10.45 Kaffihlé
10.45 – 11.15 Kynning 3 – Local Products, Work in progress: Steingerður Hreinsdóttir, Katla Geopark
11.15 – 11.45 Kynning 4 – Experiencing Scotland Project: Nicola Watt, Scottish Enterprise
11.45 – 12.15 Umræður
12.15 – 13.15 Hádegishlé (networking)
13.15 – 13.45 Kynning 5: Local Food Innovation Centres: Ingunn Jónsdóttir and Gunnþórunn Einarsdóttir, Matís
13.45 – 14.15 Kynning 6 – Hilary Knight, Sussex Food & Drink Network
14.15 – 14.30 Kaffihlé
14.30 – 15.00 Umræður og smantekt