Komið er út nýtt Power & Purity kort með ítarlegum upplýsingum fyrir ferðamenn. Kortið nær yfir allt Rangárþing og Mýrdal og er samstarfsverkefni allra sveitarfélagana. Kortið hefur verið gefið út í mörg ár og er alltaf uppfært ár hvert en það er mjög vinsælt hjá ferðaþjónustuaðilum og ferðamönnum sem fara um svæðið. Kortið má nálgast á upplýsingarmiðstöðvum, m.a. í upplýsingamiðstöðinni í Sögusetrinu.