Þann 8. janúar 2015 var Kirkjuhvoli afhent vegleg peningagjöf kr. 714.966, úr Minningarsjóði Guðrúnar á Lágafelli og skal upphæðin notuð til afþreyingar og aukinna þæginda og lífsgæða fyrir vistmenn. 
Sjóður þessi var stofnaður á útfarardegi Guðrúnar á Lágafelli í A-Landeyjum þann 29. september 1945.
Guðrún Aradóttir formaður sjóðsins afhenti gjöfina,
þakkir fluttu þau Sólveig Eysteinsdóttir hjúkrunarforstjóri
og Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri, en sveitarstjórnin gerði hlé á yfirstandandi sveitarstjórnarfundi til að vera viðstödd. Í lok þessarar góðu samverustundar spilaði Elvar  í Vatnsdal nokkur gömul og góð lög á harmoniku.
Með bestu kveðju og kæru þakklæti frá Kirkjuhvoli.

Á myndinni eru Sólveig Eysteinsdóttir hjúkrunarforstjóri, Sigríður Erlendsdóttir og Guðrún Aradóttir stjórnarmenn
minningarsjóðsins.