Miklar byggingarframkvæmdir eru á döfinni við íþróttamiðstöðina á Hvolsvelli. Íþróttaaðstaðan hefur verið byggð upp í áföngum í gegnum tíðina. Í vor verður hafist handa við byggingu búningsklefa utanhúss sem staðsettir verða við aðkomuna vestan sundlaugar. Um er að ræða einfalda byggingu úr timbri 80 m2 að stærð.

Í framhaldinu á komandi sumri verður hafist handa við byggingu 2. áfanga tengibyggingar á milli sundlaugar og íþróttahúss. Þar verða á 1. hæð búningsklefar sem ætlaðir eru fyrir íþróttahúsið og útiíþróttir. Á efri hæð er gert ráð fyrir fullbúnum æfingasal. Samtals er tengibyggingaráfanginn um 345 m2.

Hönnuðir fyrrnefndra mannvirkja eru Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar ehf og Mannvit ehf verkfræðistofa.


Teikningarnar má finna hér: http://www.hvolsvollur.is/thjonusta/byggingar--og-skipulagsfulltrui/framkvaemdir/