Það var mikið um dýrðir í leikskólanum Örk í dag þegar foreldrafélag leikskólans hélt sína árlegu vorhátíð/opið hús. Lögreglubíll, slökkviliðsbíll og sjúkrabíll voru á staðnum og voru starfsmenn með hverjum bíl þannig að börnin og fullorðnir gátu forvitnast um bílana og allt það sem fylgir störfum þessa fólks. Það þarf ekki að spyrja að því að bílarnir vöktu mikla lukku.

Opið var inn á allar deildir leikskólans og gátu því foreldrar og aðrir gestir skoðað afrakstur starfsins í vetur. Úti var boðið upp á grillaðar pylsur frá Sláturfélagi Suðurlands, börnin gátu fengið andlitsmálningu, allir gátu málað á stórt samvinnumálverk og svo var auðvitað hægt að leika sér í leiktækjunum í garðinum.

Af þessu tilefni afhenti kvenfélagið Eining, leikskólanum, 4 Ipad tölvur sem keyptar voru fyrir það fé sem safnaðist á Góuballsgleðinni í vetur. Tölvur sem þessar eru kærkomin viðbót við þau kennslutæki sem fyrir eru í leikskólanum og eiga kvenfélagsskonur þakkir skildar fyrir að standa fyrir Góugleðinni.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá Rósalind Ragnarsdóttur afhenda Árnýju Jónu Sigurðardóttur, leikskólastjóra, Ipad tölvurnar.

Fleiri myndir má finna hér: