Dagskrá
1.Frestir vegna fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2021
2.Tónsmiðja Suðurlands; Ósk um niðurgreiðlsu skólagjalda.
3.Fyrirspurn vegna lagningu ljósleiðara
4.Samstarf um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa
5.Viðbragðsáætlun; Heimsfaraldur inflúensu; COVID-19
6.Umsögn; Grund; rekstrarleyfi
7.Menningarnefnd - 36
2009004F
-
Menningarnefnd - 36
Menningarnefnd Rangárþings eystra leggur til að eftirfarandi umsóknir verði styrktar í gegnum Menningarsjóð Rangárþings eystra.
Braggi dagsins ljósmyndabók - Eiríkur Stefán Eiríksson
Menningarnefnd samþykkir að styrkja bókina um 150.000 kr.-
Stóra-Borg, staður mannlífs og menningar - Þórður Tómasson
Menningarnefnd samþykkir að styrkja bókina um 500.000 kr.-
Menningarnefnd ákveður að fresta afgreiðslu einnar umsóknar þar til fylgigögn hafa borist.
-
Menningarnefnd - 36
Umræður fóru fram um Kjötsúpuhátíð 2021.
Formaður hefur kynnt sér hvernig undirbúningur tveggja annarra hátíða hefur farið fram, hátíðir þar sem íbúar eru með súpukvöld, varðandi aðkomu sveitarfélagsins að súpuröltinu. Ljóst er að Rangárþing eystra hefur styrkt þennan hluta hátíðarinnar rausnarlega m.a. með súpuílátum, skeiðum og markaðssetningu á viðburðinum.
Menningarnefnd vill funda með framleiðendum/smásöluaðilum sem gætu jafnvel verið stuðningsaðilar við íbúa sem vilja vera með súpu. Menningarnefnd hvetur aðila sem vilja taka þátt í hátíðinni, hvort sem er með beinni aðkomu eða styrkjum, að setja sig í samband við Markaðs- og kynningarfulltrúa.
Menningarnefnd er bjartsýn og vonar að hægt verði að halda Kjötsúpuhátíð að ári.
-
Menningarnefnd - 36
Á 245. fundi sveitarstjórnar, 13.12.18 var eftirfarandi bókun gerð við bókun Menningarnefndar varðandi Nínulund: ,,Sveitarstjórn tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna að framkvæmd málsins.“
Menningarnefnd leggur því til að eftirfarandi verkáætlun verði sett í gang:
2020 - 2021 > Hafist handa við skipulagningu, hönnun grindverks og umhverfis. Byrjað að hanna og smíða nýjar brýr, útbúa skilti og fjarlægja tré. Vinna skipulag fyrir gróður og gróðursetningu.
2021 > Brýr settar upp, skilti komið fyrir, göngustígur lagaður og gerður aðgengilegur, nýjum trjám og plöntum plantað, steinhleðsla hreinsuð og löguð.
2022 > Aðrar framkvæmdir sem ekki náðist að klára sumarið 2021. Svo almennt sumar viðhald.
-
Menningarnefnd - 36
Rætt um stöðu mála.
Menningarnefnd hefur fullan skilning á að í núverandi ástandi sé þetta verkefni ekki ofarlega á framkvæmdalista sveitarstjórnar. Engu að síður væri gott að fá svar frá sveitarstjórn um afstöðu hennar til verkefnisins og hvort vilji sé fyrir hendi að halda verkefninu lifandi þar til svigrúm verður til framkvæmda.
-
Menningarnefnd - 36
Menningarnefnd felur Markaðs- og kynningarfulltrúa að senda inn tilnefningar til Hvatningarverðlauna SASS 2020.
8.562. fundur stjórnar SASS; 2.10.2020
9.Bergrisinn; 21. fundur stjórnar; 12.10.2020
10.81. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu; 22.10.2020
11.ASK Rangárþings eystra; Heildarendurskoðun
12.Svæðisskipulagsgerð fyrir Suðurhálendið; fundargerðir og gögn
13.Samband íslenskra sveitarfélaga; 889. fundur stjórnar
14.Íslensku menntaverðlaunin, tilnefning
15.Samningur; um aðgerðir til stuðnings við atvinnulíf og samfélag vegna Covid 19
16.Tölur um atvinnuleysi 2020
17.Brunabót; Ágóðahlutagreiðsla 2020
18.Ársþing SASS 29.-30. okt. 2020; Kjörbréf
19.Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga; Boðun á XXXV. landsþing; 18. desember 2020
20.Virkjun vindorku á Íslandi; stefnumótunar- og leiðbeinigarrit Landverndar
21.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2020
22.Móttökusveitarfélög; beiðni félagsmálaráðuneytisins um þátttöku í tilraunaverkefni
23.Rangárbakkar; aðalfundarboð 2020
24.Húsfriðunarsjóður; auglýst eftir umsóknum
Fundi slitið - kl. 08:55.
https://us02web.zoom.us/j/87461809082
Formaður byggðarrás setur fund og leitar eftir athugasemdnum við fundarboð, sem engin eru.