- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 17.
desember n.k frá kl. 13-16 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum. Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré. Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum en einnig verður til sölu takmarkað magn af grenitrjám, þau þarf að panta með fyrirvara.
Að venju verður boðið uppá hressingu í skóginum. Upplýsingar eru í síma 8692042.