- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Kjörfundir í Rangárþingi eystra
Kjörfundir í Rangárþingi eystra, vegna forsetakosninganna, laugardaginn 25. júní 2016, verða sem hér segir:
Í Félagsheimilinu Heimalandi kjósa íbúar austan Markarfljóts og í Félagsheimilinu Hvoli kjósa íbúar vestan Markarfljóts.
Kjörstaðir verða opnir frá klukkan:
9:00 – 18:00 í Félagsheimilinu Heimalandi og
9:00 – 22:00 í Félagsheimilinu Hvoli
Kjósendur eru beðnir að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli á skrifstofutíma fram að kjördegi.
Yfirkjörstjórn