3. fundur er haldinn í jafnréttisnefnd Rangárþing eystra 26. maí í Hvolnum kl 18:00
Mættir voru, Ingibjörg Marmundsdóttir, Önundur Björnsson og Ragnhildur Jónsdóttir
Ingibjörg setti fundinn.
Tekið er fyrir fyrsta mál á dagskrá: Jafnréttisáætlun:
Fundarmenn ræddu og fóru yfir jafnréttisáætlun eftir athugasemdir Hugrúnar á Jafnréttisstofu.
Lögð var lokahönd á Jafnréttisáætlun eftir gott samstarf við jafnréttisstofu.
Samþykkt var á fundinum að leggja áætlunina fyrir Sveitastjórn.
Fleira er ekki tekið fyrir og fundi slitið.
Ingibjörg Marmundsóttir
Ragnhildur Jónsdóttir
Önundur Björnsson