- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Kastað til bata 24. til 25. maí 2011
Umsóknir þurfa að berast Krabbameinsfélaginu ekki síðar en 4. maí
Kastað til bata er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálpar kvenna og styrktaraðila þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veiðiferð. Farið verður í tveggja daga ferð í lok maí í Sogið í Grímsnesi. Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu og veiða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. „Að veiða er að vona“. Á staðnum verða einnig félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.Gert er ráð fyrir þátttöku fjórtán kvenna. Gist er í tveggja manna
herbergjum og á boðstólum verður ljúffengur og hollur matur í anda krása
úr matreiðslubókinni Bragð í baráttunni. Ferðin hefst snemma að morgni
24. maí og lýkur að kveldi 25. maí og tekur tvo daga. Þátttakendur fara á
eigin bílum en mælst er til að þær hópi sig saman í bíla og deili
eldsneytiskostnaði.
Á bökkum Sogsins gefst konum tækifæri til að
gleyma sér í kyrrð og ró í stórbrotinni náttúrufegurð og sækja og gefa
styrk til kvenna með svipaða reynslu og eru tilbúnar að miðla af sinni
reynslu. Síðast en ekki síst er tilgangurinn sá að njóta gleðinnar sem
því fylgir að kasta flugu, renna fyrir fisk, vaða tært vatn Sogsins og
endurnærast á sál og líkama.
Þetta er í annað sinn sem Kastað til
bata verkefnið er sett upp. Í fyrra voru þátttakendur sérlega ánægðir og
halda þær enn hópinn. Þær sögðu m.a. „Þetta var sannkallað ævintýri frá
upphafi til enda. Skipulagið var frábært, maturinn hollur og góður,
leiðsögumennirnir voru stórkostlegir og allur aðbúnaður til fyrirmyndar.
Frábær hreyfing fyrir „brjóstakonur“ og dásamleg samvera í fallegu
umhverfi“.
Konur sem hafa hug á að taka þátt í Kastað til bata eru beðnar að
senda umsókn til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir 4. maí.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is.
Í Ráðgjafarþjónustunni eru veittar nánari upplýsingar í síma 540-1900.
Þátttakendur á hittast á undirbúningsfundi í Ráðgjafarþjónustunni fyrir
ferðina.
Meðal samstarfsaðilar Krabbameinsfélagsins í þessu verkefni eru:
Stangveiðifélag Reykjavíkur, Ellingsen, Veiðihornið og Kastað til bata 2010.
Umsækjendur þurfa að senda tölvupóst á Ásdísi Káradóttur hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, asdisk@krabb.is þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar:
Nafn,
Heimilisfang,
Kennitala,
Heimasími,
Farsími,
Hvenær brjóstakrabbameinsmeðferð lauk (mánuður og ár),
Hvaða tegund brjóstakrabbameinsmeðferðar (aðgerð, lyf, geislar),
200 orða greinargerð um hvers vegna umsækjandi vill taka þátt í verkefninu,
Hvernig metur umsækjandi líkamlegt ástand sitt til þess að taka þátt til endurhæfingarverkefni á borð við Kastað til bata?
Nánari upplýsingar veita: