- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Rangárþing eystra auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð Rangárþings eystra fyrir haustúthlutun 2022 sbr. reglur um úthlutun styrkja úr sjóðnum. Styrkupphæðin er samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs.
Umsækjendur um styrk úr Menningarsjóði Rangárþings eystra geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningu í sveitarfélaginu. Umsækjendur með lögheimili í Rangárþingi eystra geta einnig sótt um styrk þó verkefnið fari fram utan sveitarfélagsins.
Með umsókninni verður að fylgja:
Ekki eru veittir ferðastyrkir eða rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrkir.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur ákvörðun um úthlutun styrkja samkvæmt fyrirliggjandi umsóknum að fengnu áliti menningarnefndar Rangárþings eystra.
Umsóknum á að skila á eyðublaði sem finna má á https://www.hvolsvollur.is/is/mannlif/menning/menningarsjodur-rangarthings-eystra
Umsóknarfrestur er til 11. september 2022.