Á Bleika deginum hvetjum við landsmenn til að vera bleika - fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra finni stuðning okkar og samstöðu.

Ef fleiri eiga bleikar myndir af stofnun eða vinnustað frá deginum má gjarnarn senda okkur þær á hvolsvollur@hvolsvollur.is

Við fengum þessa skemmtilegu mynd senda frá Hvolsskóla og var kaffistofan þar vel bleik.

Þessi stóri bangsi lét sig ekki vanta!

 

Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar tók þátt í bleika deginum🎀