Hluti nemenda á Leikskólanum Örk vinnur nú könnunarverkefni sem nefnist "Hvolsvöllur er bærinn minn". Börnin hafa t.d. farið í vettvangsferðir til að skoða umhverfið, farið í heimsókn í fyrirtæki og komið við á skrifstofu Rangárþings eystra til að fræðast um Hvolsvöll. Í morgun kom hópur ásamt leikskólakennurum í heimsókn og fengu bæklinga og kort til að glöggva sig enn frekar á bænum og sveitarfélaginu. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá heimsókninni en fleiri má finna í myndasafninu.