- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Allar nánari upplýsingar veitir Júlíus P. Guðjónsson 663-7065.
Áætlað er að hafa aðalfund félagsins á Hvoli Hvolsvelli fimmtudaginn 5. apríl 2018 og hefst hann kl: 13:00 síðan verður spilað á eftir.Nánar auglýst síðar.
Sparidagavikur eldri borgara verða í Örkinni eftirtaldar dagsetningar 3.mars til 9. mars. 2018 (18. mars til 23. mars. 2018 )og 29. apríl til 4. maí.2018. Fullbókað er dagana 18 til 23 mars. en 5 herbergi pöntun vikurnar 3.- 9. mars og 29.apríl til 4. maí.
Verð fyrir 2.manna herbergi er 52.000,- á mann aukagjald fyrir einbýli er 9.500,-
Dagskrárstjóri er Gunnar Þorláksson
Pantanir berist til Þórunnar Ragnarsdóttur sími 487-5922 eða 892-5923 sem heldur hópnum saman og verður í sambandi við Hótel Örk.
Messa á Uppstigningadag, degi aldraðra, þann 10. maí 2018, ekki ákveðið hvar hún verður. Rútuferð verður eins og áður í þessa messu. Nánar auglýst síðar.
Sumarstarfið: Sundleikfimi verður í sumar í sundlaugunum á Hellu og Hvolsvelli ef næg þátttaka fæst.
Hið sívinsæla pútt á Strandavelli verður á þriðjudögum og byrjar eftir miðjum maí, nánar auglýst síðar Allar upplýsingar eru hjá Mörtu Arngrímsdóttur .487-8249/868-4511
Vorferðin í júní verður fimmtudaginn .14 júní 2018 ekið um Grafning, Þingvelli, Nesjavallaleið og Kjósin.
Nánar auglýst síðar.
Sumarferðin :Búið er að panta í ferð dagana 8. til 11. júlí 2018 gist verður á Hótel Eddu á Akureyri allar næturnar farið verður í Mývatnssveit, Bárðardal, Aðaldal og að Þeistareykum. Ekki öll verð tilbúin en verða auglýst þegar þau berast. Þeir félagar sem hafa hug á að koma með vinsamlega skráið nöfn ykkar sem fyrst hjá Þórunni í síma 487-5922eða 892-5923 því hótelið verður að fá töluna vegna gistingar tveimur mánuðum fyrir brottför því þetta er mesti annatími sumarsins.
Haustferðin verður farin fimmtudaginn 16. ágúst 2018 ekið verður inn Rangárvallaafrétt og fram Fljótshlíðarafrétt. Nánar auglýst í Búkollu
Fréttabréfið verður sett á heimasíður Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps þar í pakka “Félagsstarf eldri borgara” svo félagsmenn geti séð það þar
Vonum við hjá stjórn að þetta verði gott ár hjá okkur eins og ævinlega.
Félagsmenn vinsamlega auglýsið starf okkar og komið á framfæri að allir Rangæingar 60 ára og eldri séu velkomnir í félagið, það er alltaf gott að fá nýja félaga og þar með nýjar hugmyndir.
Guðrún Aradóttir , Svavar Hauksson, Þórunn Ragnarsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Júlíus P. Guðjónsson, Ingibjörg Þorgilsdóttir og Þorsteinn Markússon.